24.2.2012 | 16:40
Mbl ekki með bestu fréttamennina, gamalt.
Ég skil ekki hvað er nýtt í þessu... annað en að "fráteknar" vikur móður verði 12 vikur í staðinn fyrir 9... annars er þetta nákvæmlega eins og kerfið er í dag. Getur einhver bent mér á hvað er nýtt í þessu?
Þessar reglur um 12 vikur til karla tóku gildi um börn fædd eftir 30 júni 2011.
|
Norðmenn breyta fæðingarorlofinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2012 | 12:07
Verða að gera það.
Þessi svokölluðu minni lið geta oft verið erfið og það hefur Liverpool fengið að kynnast sem og svo mörg önnur lið.
Þegar maður skoðar sögu fa cup hjá Liverpool þá hafa vissulega unnist margir titlar en liðið hefur einnig fengið útreið gegn minni liðum.
Tímabil:
2009/10 Dettum út í 3 umferð með 1-2 tapi á heimavelli gegn Reading eftir að það þurfti annan leik þar sem að liðin skildu jöfn á Madesjki Stadium 1-1.
2007/08 Dettum út í 5 umferð gegn Barnsley á Anfield 1-2.
2004/05 Dettum út í 3 umferð gegn Burnley á útivelli 1-0.
2003/04 Dettum út í 5 umferð gegn Porstmouth úti 1-0 eftir jafntefli á Anfield.
2002/03 Dettum út í 4 umferð gegn Crystal Palace á heimavelli 0-2 eftir 0-0 á útivelli.
Þetta er bara s.l. ár og sést bara að það er algjörlega bannað að vanmeta "minni" lið í þessari keppni sem og LC enda leggja þau allt í þessa leiki.
Liverpool eru heldur ekki þeir einu sem eru að detta út gegn liðum sem þeir ættu að vinna síður en svo.
Smá úr sögunni: Sjáum bara Hull í ár sem töpuðu heima gegn Crawley.
Allt of oft detta mínir menn út í þessari keppni gegn minni spámönnum og tel ég að um gríðarlegt vanmat sé um að ræða en ég vona að svo verði ekki í dag og tippa á 3-0 sigur Liverpool.
|
Skrtel: Gætum okkar á Brighton |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2012 | 00:29
Held að menn ættu að skoða málið betur.
Vissulega er ég Liverpool maður og ég er pirraður á hegðun Suárez og því veseni sem fylgir honum oft á tíðum en þó aðallega pirraður á nöldrinu í honum.
Í dag þegar að ég horfði á leikinn var ég handviss um að Suárez hefði gert einmitt það sem margir halda fram eða rífa höndina í burtu eða hundsa Evra.
Nú legg ég til að menn skoði betur myndbönd að þessu.
http://www.huffingtonpost.com/2012/02/11/luis-suarez-patrice-evra-handshake_n_1270175.html
Á þessu myndbandi sést augljóslega að Evra ætlar sér aldrei að taka í hönd Suárez og dregur hana niðri, horfið bara á hvernig allir heilsast. Suárez heldur þeirri hæð sem allir heilsast og Evra dregur niður hendina þegar að Suárez kemur að honum án þess þó að sækjast sérstaklega eftir því að taka í hönd Evra.
Svo er annað myndband hérna þar sem að það er augljóst að Evra dregur hendina í burtu. 0:30 sek og þið sjáið það. Furðuleg hegðun hjá báðum mönnum og ég skil að menn verji sína menn en Ferdinand ætti að skoða þetta sem og aðrir sem halda að bara Suárez eigi í hlut hérna.
Svo tvö önnur ativk. Ég skil ekki hver tilgangur Suárez var að negla boltanum til hliða í lok fyrri hálfleiks á sama tíma og ég skil ekki að Evra hafi þurft að hlaupa fram fyrir Suárez til að fagna í leikslok og fylgja honum svo. Dowd þurfti 2 sinnum að grípa í Evra útaf hans hegðun og það hlýtur bara að gefa til kynna að Evra er ekki kórdrengur. Svo á eftir að koma í ljós hvað gerðist í göngunum í hálfleik sem og eftir leik því það þurfti í bæði skiptin að kalla til lögreglu. Fúlt að þessi leikur hafi farið út í það að snúast um þessa tvo menn í stað knattspyrnu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2012 | 08:27
Forgangsroðun.
Lán uppá 410 milljónir en listamannafólkið fær styrki upp á 467 milljónir.
217 einstaklingar fá þessa listamannastyrki á meðan að þeim varið betur varið í eitt af stærstu bæjarfélögum Íslands sem á sama tíma hlýtur bara að skila meiru af sér til landans. Held ég en get ekki fullyrt um það.
Finnst þetta svolítið kjánalegt.
|
410 milljón króna lán Hafnarfjarðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2012 | 07:54
Ekki bara á Íslandi!!
Les reglulega nokkra bloggara grenja sig þurra yfir bensínverði á Íslandi eins og að Ísland sé eina landið í heiminum með verðhækkanir og bensínstöðvar með sama eða lík verð.
Bý í Noregi og hérna kostaði líterinn 80-85 ISK í byrjun árs 2006. Í dag kostar líterinn rúmar 300 ISK.
Málið er að alheimsverð hækkar og þetta er ekki einskorðað við Ísland þó einhverji haldi það í einfeldni sinni.
Ég hef búið á Íslandi, Austurríki, Svíðþjóð, Danmörku og Noregi og það er allsstaðar eins. Olíufélögin með lík ef ekki sömu verð og hækkanir og lækkanir á sama tíma og er ekki einskorðað við Ísland.
|
Ólík þróun á olíumarkaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.2.2012 | 11:17
Rooney myndböndin.
Set myndböndin beint hingað inn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2012 | 10:53
Er Rooney hræsnari?
Svarið er já.
Þessi maður hefur núll rétt á því að krítisera aðra menn fyrir tæklingar þegar að hann sjálfur er algjör drullupési á vellinum.
http://www.youtube.com/watch?v=IjVU6Twg2lg
http://www.youtube.com/watch?v=8-8Ljwa5o1c
Þetta eru bara tvö atvik af mjög svo mörgum hjá þessum dreng en hann er kannski bara svo vitlaust greyið að hann fattar ekki hversu fáránlega hluti hann hefur gert sjálfur.
Vissulega hefði dómarinn geta gefið Suárez rautt en hann hefur hvað? 1 sekúndu til að sjá þetta og dæma og dæmdi svo að Suárez hefði haft augun á boltanum allan tíman (mín túlkun).
Málið er það að Suárez er langt frá því að vera skarpasti hnífurinn í skúffunni og endalaust væl hans í dómurum fer óstjórnlega í taugarnar á mér.
Ég sé að Suárez hefur galla, sjá Utd menn gallana hjá Rooney?
Ég veit það ekki en eitt er víst og það er að Rooney ætti að vera síðasti maðurinn í knattspyrnu til að tjá sig um mistök annar þegar að hann sjálfur er í því að gera fólsku eða heimsku brot.
|
Rooney: Suárez átti að fá rautt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.2.2012 | 09:35
Mun það gerast?
Ég er nú bara sófapési sem hef gaman að boltanum en ég hef því miður enga trú á því að Bale verði stöðvaður í kvöld. Johnson á áskrift af föstu sæti í hægri bakvarðarstöðunni þrátt fyrir að Kelly sé að spila mun betur, að mínu mati.
Johnson mun ekki ráða við Bale að ég tel en Kelly hefur sýnt það að hann kann þetta og hver man ekki eftir því þegar að hann hreinlega pakkaði Evra saman.
Svo þarf að stöðva Modric og hver á að sinna því þar sem að Lucas er ekki með?
Ég bind mínar vonir við Spearing því ég held að hann sé mun grimmari og beittari í því að taka einhvern svona mann úr umferð en nokkurn tíman Henderson eða Adam.
Spái erfiðum leik en spái 1-1.
Fái ég að sjá liðið sem ég óska eftir að sjá þá vinnum við 2-1 eða 3-1.
Það er svona:
Reina
Kelly-Agger-Skrtel-Enrique
Henderson-Spearing-Gerrard
Bellamy-Carroll-Suárez
Spearing aðeins fyrir aftan Gerrard og Henderson, Bellamy og Suárez draga sig út á kantana og vinna til baka.
Bara hugmynd. :)
|
Reina: Verðum að stöðva Modric og Bale |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2012 | 09:04
FA með fordóma?
Já það má með sanni segja að það er ekki sama hvort það er Jón eða Séra Jón þegar að það kemur að málum á enskri knattspyrnugrundu.
Luis Suárez var dæmdur í 8 leikja bann fyrir meint kynþáttaníð í garð Patrice Evra þrátt fyrir að bæði Evra, sérfræðingar og FA hafi verið sammála að þetta hafi ekki verið kynþáttaníð en samt dæmdi FA málið sem slíkt.
Ég er ekki með þessu að verja Suárez heldur benda á hvernig FA höndlar sín mál og hvernig getur þú sagt að þetta sé ekki kynþáttaníð en dæmt það sem slíkt?
Ef einhver slær einhvern utan undir á þá að dæma hinn sama fyrir morðtilraun?
Í upphafi þessa máls var kært til FA en FA sjálfum sér samkvæmir og neituðu að gera nokkuð og þess vegna málið orðið að lögreglumáli.
Nú er öllu frestað svo að John Terry geti tekið þátt í EM í sumar og það er með ólíkindum að horfa uppá vinnubrögð FA og maður er farinn að setja spurningarmerki við það hvort að FA eitt og sér sé ekki rasisma samband og þá meina ég gegn útlendingu.
Það er mjög einfalt að skoða þessi mál í fljótu bragði.
Á sínum tíma var ákveðið að taka á því að leikmenn gerðu aðsúg að dómara. Argentínumaðurinn Macherano var gerður að fordæmi í leik Liverpool gegn Man Utd og það réttilega enda hagaði hann sér fáránlega og maður uppsker oft eins og maður sáir.
Strax í næsta leik Chelsea voru Lampard og Terry fremstir í flokki manna sem veittust að dómara trekk í trekk og hvað var gert við ensku gulldrengina? Nú ekkert.
Rooney hefur jú fengið fáránleg bönn eins og fyrir æfingarmót en hann hefur líka sloppið með ýmislegt.
Liverpool goðið Steven Gerrard sleppur við refsingar hjá FA og svona mætti lengi telja.
Þannig að þegar öllu er á botninn hvolft þá virðist sem að FA séu ansi duglegir við að gera fordæmi úr útlendingum og passa uppá gullstrákana sína en það finnast samt örfáar undantekningar(Rio Ferdinand 8 mánaða bann).
Það er algjör skömm að horfa uppá þetta og í raun ótrúlegt hversu mikið rugl samband FA er enda aldrei neinni línu fylgt og þeir verða sér til háborinnar skammar trekk í trekk og það mætti án gríns halda að þessir menn væru ekki alveg heilir á vitsmunum.
Flest bönn sem FA setur á enska leikmenn koma ekki niður á landsliðinu þeirra en ef útlendingar eiga í hlut þá er ekkert liðið.
Mér er líka hulin ráðgáta afhverju FIFA/UEFA grípa ekki inn í og tekur ekki á knattspyrnusamböndum annarra landa. Það er jú til alþjóðaknattspyrnusamband sem ætti að geta tekið á þessum málum sem og t.d. leikaraskap liða sbr Barcelona því ekki eru knattspyrnusambönd landana að standa sig það er á hreinu og hversu marga hefur t.d. Busquet eða hvað hann nú heitir hjá Barcelona fiskað útaf með leikaraskap?
Það á að skoða upptökur og ef menn eru vísir að svona hegðun þá á að dæma þá í 6 leikja bann, sem sagt beint rautt 3 leikir x2 fyrir að blekkja dómara leiksins og svindla.
Aðeins útfyrir það sem málið fjallaði um en þetta er bara gott dæmi um annað knattspyrnusamband/bönd sem vinna ekki góða vinnu.
|
Vilja að fyrirliðabandið verði tekið af Terry |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 23227
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




seinars
nautabaninn